『Iðjuleysinginn』のカバーアート

Iðjuleysinginn

Iðjuleysinginn

著者: Leon og Maggi í Lennahelli
無料で聴く

今ならプレミアムプランが3カ月 月額99円

2026年5月12日まで。4か月目以降は月額1,500円で自動更新します。

概要

Iðjuleysinginn gefur sér tíma til að rýna í málefni stór og smá. Fréttir dynja á okkur alla daga — hér gefum við okkur andrými til að skilja heiminn, frekar en að taka við tilbúnum túlkunum annarra.

© 2026 Iðjuleysinginn
世界 政治・政府 政治学 社会科学
エピソード
  • #12 Kúba og erlend afskipti
    2026/04/09

    Send us Fan Mail

    Kúba er fallegt land með iðandi mannlífi og ríka menningu. Dansandi fólk á strætum undir lifandi tónlist þar sem öldungar púa vindla er sjón sem maður sér fyrir sér þegar hugurinn reikar til Kúbu. Hins vegar hefur erlend íhlutun verið fyrirferðarmikil í sögu Kúbu, þar sem stórveldi hafa ráðið miklu um örlög landsins.

    Iðjuleysinginn veltir fyrir sér hvernig lítil eyja í Karíbahafinu varð að brennidepli kalda stríðsins og hvað örlög bíða íbúa þessarar fögru eyju.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 12 分
  • #11 Þrautarganga Gyðinga og raunir þeirra
    2026/04/01

    Send us Fan Mail

    Saga Gyðinga er sorgarsaga. Ekki er til nein þjóð né trúarbrögð sem hafa mætt slíkum ofsóknum eins og Gyðingar hafa mætt. Í gegnum aldirnar, og jafnvel árþúsundir, hafa þeir verið landlausir, búið við skert réttindi og á sumum tímabilum hreinlega reynt að útrýma þeim.

    Iðjuleysinginn fer yfir sögu Gyðinga og þeirra raunir og gerir tilraun til að setja áskoranir við botni Miðjarðarhafs í samhengi við sögu þjóðar sem hefur þurft að búa við mismunum svo langt sem sögur ná.

    続きを読む 一部表示
    1 時間 11 分
  • #10 Angela Merkel og Evrópa samtímans
    2026/03/25

    Send us Fan Mail

    Það má færa rök fyrir því að Angela Merkel sé sá stjórnmálamaður sem hefur haft ein mest áhrif á stjórn Evrópu. Hún leiddi álfuna í mörgum málefnum, sem hefur bæði leitt af sér velsæld en einnig áskoranir sem Evrópa stendur frammi fyrir í dag.

    Iðjuleysinginn fer yfir sögu Angelu Merkel frá barnsæsku til kansara Þýskalands og setur það í samhengi við málefni álfunnar.

    続きを読む 一部表示
    54 分
まだレビューはありません