『Sögur úr raunveruleikanum』のカバーアート

Sögur úr raunveruleikanum

Sögur úr raunveruleikanum

著者: RÚV Hlaðvörp
無料で聴く

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

RÚV Hlaðvörp
ノンフィクション犯罪 政治・政府 社会科学
エピソード
  • Álögin á Vatnsenda 3.þáttur
    2026/07/02

    Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.


    Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.


    Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.


    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

    Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    50 分
  • Álögin á Vatnsenda 2.þáttur
    2026/06/16

    Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina.

    Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann.

    Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins.


    Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir.


    Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

    Tónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum)

    Hljóðblöndun: Markús Hjaltason

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    52 分
  • Álögin á Vatnsenda 1.þáttur
    2026/06/16

    Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja.

    Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    続きを読む 一部表示
    38 分
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
まだレビューはありません